Patrekur tekur ekki við Rúnari og félögum

Patrekur Jóhannesson tekur ekki við Hannover-Burgdorf.
Patrekur Jóhannesson tekur ekki við Hannover-Burgdorf. Ljósmynd/Srdjan Suki

Patrekur Jóhannesson verður ekki næsti þjálfari þýska handboltaliðsins Hannover-Burgdorf, þrátt fyrir að félagið hafi haft áhuga á að ráða hann til starfa. Rúnar Kárason leikur með Hannover. Vísir greinir frá þessu í dag

Jens Bürkle var rekinn frá Hannover eftir síðustu leiktíð eftir erfitt tímabil. Patrekur tók við Selfossi á dögunum og mun hann virða samning sinn við Selfyssinga. Hann mun meðfram því þjálfa austurríska landsliðið, sem tryggði sér þáttökurétt á EM í Króatíu um helgina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert