Rúnar staðfestir brottför

Rúnar Kárason.
Rúnar Kárason. mbl.is/Kristinn Magnússon

Landsliðsmaðurinn Rúnar Kárason staðfestir á twitter-síðu sinni að hann muni yfirgefa þýska liðið Hannover-Burgdorf eftir tímabilið.

Rúnar segir að það skýrist annað kvöld til hvaða félags hann muni ganga til liðs við fyrir næstu leiktíð en á dögunum greindi vefur TV2 í Danmörku frá því að danska úrvalsdeildarliðið Ribe-Esbjerg sé í viðræðum við íslenska landsliðsmanninn.

Rúnar hefur mátt sætta sig við að verma varamannabekkinn mikið hjá Hannover-Burgdorf en hann kom til liðsins fyrir fjórum árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert