Grétar Ari Guðjónsson og liðsfélagar hans í Séléstat unnu sterkan heimasigur á Massy Essonne, 31:26, í frönsku B-deildinni í handbolta í kvöld.
Grétar Ari varði sex skot, öll í síðari hálfleik, og kom sterkt inn undir lokinn en jafnt var á milli liðanna.
Sélestat er í fjórða sæti deildarinnar með 28 stig.