Norska kvennalandsliðið í handknattleik, undir stjórn Þóris Hergeirssonar, verður í gífurlega sterkum riðli á Ólympíuleikunum í París í sumar.
Noregur verður með Danmörku og Svíþjóð í A-riðli keppninnar en þau höfnuðu í þremur af fjórum efstu sætunum á heimsmeistaramótinu sem fram fór undir lok síðasta árs.
Einnig verða Slóvenía, Suður-Kórea og Þýskaland með Norðurlöndunum í riðli. Heimsmeistarar Frakka verða þá í B-riðli ásamt Ungverjalandi, Hollandi, Spáni, Brasilíu og Angólu.
Fjögur efstu lið riðlanna beggja fara áfram í átta liða úrslit.