Ronaldo þarf að bæta sig

Cristiano Ronaldo náði sér ekki á strik á HM.
Cristiano Ronaldo náði sér ekki á strik á HM. Reuters

Carlos Queiroz landsliðsþjálfari Portúgala í knattspyrnu, segir að Cristiano Ronaldo verði að bæta leik sinn ef hann eigi að eiga öruggt sæti í byrjunarliðinu.

Dýrasti knattspyrnumaður heims hefur alls ekki náð að sýna sínar bestu hliðar í treyju portúgalska landsliðsins undanfarna mánuði og frammistaða hans með liðinu á HM var slök.

Ronaldo skoraði aðeins eitt mark og virkaði mjög pirraður og með litla leikgleði en Portúgalar töpuðu fyrir Spánverjum í 16-liða úrslitunum í fyrrakvöld. Ronaldo sagði á vef umboðsmanns síns í gær að hann væri niðurbrotinn maður en hann fékk enga samúð frá landsliðsþjálfaranum. Queiroz sagði að Ronaldo yrði að standa sig fyrir þjóð sína.

„Portúgal þarf á Ronaldo að halda og Ronaldo þarf á landsliðinu að halda,“ sagði Queiroz en hann mætir með lærisveina sína á Laugardalsvöllinn í október þegar Ísland og Portúgal eigast við í undankeppni Evrópumótsins. Ef að líkum lætur verður Ronaldo með í þeim slag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert