Karabatic: Veljum okkur ekki mótherja

Nikola Karabatic skorar eitt marka Frakka í leiknum gegn Norðmönnum …
Nikola Karabatic skorar eitt marka Frakka í leiknum gegn Norðmönnum í gærkvöld. Reuters

Frakkinn Nikola Karabatic, sem af mörgum er talinn besti handboltamaður heims, segir að Frakkar hugsi ekki þannig að þeir ætli að velja sér mótherja í undanúrslitum á heimsmeistaramótinu.

Frakkar mæta Íslendingum í lokaleik dagsins í milliriðli HM í Jönköping. Leikurinn hefst klukkan 19.45 að íslenskum tíma en hálftíma áður verður flautað til leiks í viðureign Dana og Svía en Frakkar mæta annarri hvorri þjóðinni í undanúrslitum.

Landsliðsmenn Svía og Dana eru óhressir með að leikur Íslands og Frakklands hefjist síðar en viðureign Dana og Svía. Með því geti Frakkar valið sér mótherja í undanúrslitum og tapað  viljandi fyrir Íslandi ef svo ber undir.

,,Við mætum í leikinn við Ísland með því hugarfari að vinna. Við munum ekki velja okkur mótherja. Ég trúi að slíkt boði ógæfu. Danmörk og Svíþjóð hafa á sterkum liðum að skipa svo það skiptir í raun ekki máli fyrir okkur hvor þjóðinni við mætum,“ sagði Karabatic við norsku sjónvarpsstöðina TV2 eftir sigur Frakka gegn Norðmönnum í gær en með honum tryggði Frakkar sér farseðilinn í undanúrslitin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert