Byrjum á nýrri kennitölu

„Þetta var skemmtilegur leikur við nokkuð erfiðar aðstæður. Ég er ánægður með hvernig liðið svaraði fyrir eftir síðasta leik,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik, eftir að sæti í 16 liða úrslitum HM í handknattleik var í höfn.

„Þetta gekk í heild nokkuð vel. Það er þungu fargi af okkur létt og segja má að nú séum við komnir á nýja kennitölu,“ sagði fyrirliðinn sem lék sinn 50. landsleik á heimsmeistaramóti í kvöld og hélt upp á það með sigri og 13 mörkum.

Nánar er talað við Guðjón Val á meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert