Dansandi mínúta hjá strákunum (myndskeið)

Björgvin Páll Gústavsson.
Björgvin Páll Gústavsson. mbl.is/Golli

„Göngutúr lokið og menn klárir í Danina,“ skrifar Björgvin Páll Gústavsson, markvörður íslenska landsliðsins, á instagramsíðu sína en Íslendingar mæta Dönum í 16-liða úrslitunum á HM í kvöld.

Björgvin er því klár í slaginn og hefur hrist af sér lasleika sem hann glímdi við í gær en Aron Pálmarsson spilar ekki í kvöld.

Strákarnir voru léttir í Doha í morgun og stigu léttan dans. Sjá myndskeiðið

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert