Breiðablik tók á móti ÍR í 5. umferð Iceland Express deildarinnar í körfuknattleik karla í Smáranum. Nýliðar Breiðabliks lönduðu sínum þriðja sigri í deildinni og hafa unnið tvo leiki í röð en ÍR-ingar eru enn án sigurs. Lokatölur 75:71 en í hálfleik var staðan 33:18.
Breiðhyltingar léku án Hreggviðs Magnússonar eins og í síðasta leik og munar mikið um hann.
Stigahæstur hjá Blikum var Nemanja Sovic með 31 stig en Eiríkur Önundarson var stigahæstur ÍR-inga með 27 stig.