NBA: Boston endaði deildarkeppnina með sigri

Jason Kidd leikmaður Dallas sækir að körfu down New Orleans.
Jason Kidd leikmaður Dallas sækir að körfu down New Orleans. Reuters

Deildarkeppninni í NBA-deildinni í körfuknattleik lauk í nótt og nú er ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppninni sem hefst strax um komandi helgi. Boston náði bestum árangri allra liða í deildakeppnini en liðið vann 66 leiki en tapaði aðeins 16.

Í 1. umferð úrslitakeppninnar mætast þessi lið:

Boston - Atlanta

Detroit - Philadelphia

Orlando - Toronto

Cleveland - Washington

LA Lakers - Denver

New Orleans - Dallas

SA Spurs - Phoenix

Utah - Houston

Úrslit leikja í nótt:

Boston - New Jersey 105:94

Jeon Powe skoraði 27 stig fyrir Boston og tók 11 fráköst en hjá New Jersy var Richard Jefferson með 24 stig. New Jersey komst ekki í úrslitakeppnina í fyrsta sinn í sjö ár.

SA Spurs - Utah 109:80

Meistarar SA Spurs fóru á kostum þar sem Tony Parker skoraði 24 stig og tók 12 fráköst. Tim Duncan skoraði 14 stig fyrir Spurs og tók 11 fráköst.

Denver - Grizzlies 120:111 

Carmelo Anthony skoraði 17 stig og tók 6 fráköst í sigri Denver sem vann sinn 50. sigri en svo marga leiki hefur liðið ekki unnið í deildarkeppninni í 20 ár. Denver mætir Lakers í 1. umferð úrslitakeppninnar.

Önnur úrslit:

Detroit - Cleveland 84:74

Indiana - New York 132 - 123

Orlando - Washington 103:83

Charlotte - Philadelphia 115:109

Miami - Atlanta 113:99

Minnesota - Milwaukee 110:101

Chicago - Toronto 107:97

Houoston - LA Clippers 93:75

Phoenix - Portland 100:91

Seattle - Golden State 126:121

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert