LeBron James leikmaður ársins

LeBron James er bestur í NBA-deildinni.
LeBron James er bestur í NBA-deildinni. Reuters

LeBron James hjá Cleveland Cavaliers er leikmaður ársins í
NBA-deildinni í körfuknattleik þetta tímabilið. Kjörið verður kunngjört á
sunnudag en AP fréttastofan skýrði frá niðurstöðum þess í dag.

Þetta er annað árið í röð sem James fær þessa viðurkenningu og er hann tíundi leikmaðurinn í sögu NBA sem hreppir hana tvö ár í röð.
Reyndar gerðu Bill Russell, Wilt Chamberlain og Larry Bird enn betur og unnu hver um sig þrjú ár í röð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert