Stórleikur hjá Kobe og stórsigur Lakers

Pau Gasol treður boltanum í körfu Phoenix, framhjá Amare Stoudemire, …
Pau Gasol treður boltanum í körfu Phoenix, framhjá Amare Stoudemire, í leiknum í nótt. Reuters

Kobe Bryant átti stórleik með LA Lakers í nótt þegar liðið vann mjög öruggan sigur á Phoenix  Suns, 128:107, í fyrsta úrslitaleik liðanna í Vesturdeild NBA í körfuknattleik.

Bryant skoraði 40 stig, þar af 21 í þriðja leikhluta þegar Lakers náði öruggri forystu, og hefur nú í fyrsta sinn í 14 ár skorað 30 stig eða meira í sex leikjum í röð í úrslitakeppninni.

Lamar Odom var líka geysisterkur hjá Lakers en hann skoraði 19 stig og tók 19 fráköst.

Amar'e Stoudamire skoraði 23 stig fyrir Phoenix og Steve Nash var með 13 stig og 13 stoðsendingar.

Liðin mætast aftur í Los Angeles aðfaranótt fimmtudags.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert