Landon Donovan: Ég sakna Everton

Landon Donovan spilar með Los Angeles Galaxy.
Landon Donovan spilar með Los Angeles Galaxy. Reuters

Bandíski framherjinn Landon Donovan leikmaður Los Angeles Galaxy er sagður vera á leið í ensku úrvalsdeildina í janúar.

Donovan er samkvæmt enska blaðinu The Mirror við það að semja við Everton í þriðja sinn um að leika með liðinu í janúar og fram í mars. Hann lék með liðinu 2010 og 2012.

„Ég sakna Everton og ég myndi fagna því ef samningar takast. Ég sakna fólksins, leikmanna og orkunnar frá áhorfendum og hvað þeir elska félagið,“ hefur blaðið eftir honum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert