Clevaland vann tólfta leikinn í röð

LeBron James og félagar eru í góðum málum þessa dagana.
LeBron James og félagar eru í góðum málum þessa dagana. AFP

LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers héldu áfram sigurgöngu sinni í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt þegar þeir unnu LA Clippers með 11 stiga mun, 105:94.

Þetta var tólfti sigur Cleveland í röð en það er lengsta sigurhrina liðsins síðan árið 2010. Liðið er komið upp í 3. sæti austurdeildarinnar með 31 sigur í 51 leik.

James skoraði 23 stig og átti 9 stoðsendingar en þar af komu 15 stig og 8 stoðsendingar í fyrri hálfleiknum. Kevin Love var stigahæstur hjá Cleveland með 24 stig.

Úrslit næturinnar:
Charlotte - Washington 94:87
Cleveland - LA Clippers 105:94
Sacramento - Dallas 78:101
Portland - Phoenix 108:87

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert