Bjóst við að geta gert meira

Sverrir Þór Sverrisson þjálfari Grindavíkur var ósáttur við sóknarleik síns liðs í einvíginu gegn Snæfelli í undanúrslitum Dominos-deildar kvenna í körfuknattleik. Slæmur sóknarleikur segir Sverrir hafa verið liði sínu erfiður og þegar á heildina á litið er Sverrir ekki sáttur með tímabilið sem hefur að hans mati verið óstöðugt en hann segist hafa búist við því að geta gert meira á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert