Durant gengur til liðs við Golden State

Kevin Durant mun leika með Golden State Warriors á næsta …
Kevin Durant mun leika með Golden State Warriors á næsta keppnistímabili. AFP

Einn besti leikmaður NBA-deildarinnar í körfuknattleik, Kevin Durant, hefur ákveðið að söðla um og ganga til liðs við Golden State Warriors.

Durant hefur undanfarin ár leikið með Oklahoma City Thunder. Samningur hans við Thunder rann út í sumar og því var honum frjálst að semja við hvaða lið sem honum þóknaðist.

Golden State Warriors varð NBA-meistari í fyrra en tapaði í úrslitaeinvíginu gegn Cleveland Cavaliers í ár. Durant hefur verið með bestu mönnum deildarinnar síðan hann hóf leik þar árið 2007, með Seattle SuperSonics, sem flutti þaðan til Oklahoma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert