„Þeir voru töffarar“

Hörður Axel Vilhjálmsson bakvörður Keflvíkinga var að sjálfsögðu brúnaþungur þegar mbl.is náði tali af honum eftir tap gegn Þór Þorlákshöfn, 85:82, í Dominos-deild karla í körfuknattleik í kvöld. 

Sjá frétt mbl.is: Þórsarar unnu í Keflavík

Hörður sagði að annan leikinn í röð hafi Keflvíkingar dottið í kæruleysi en að öðru leyti hafi Keflvíkingar verið við stjórnina í þessum leik og því tapið slæmt að því leyti.  Hörður sagði sína menn einbeita sér að því að ná sem flestum sigrum fram að úrslitakeppni.

Nánar er rætt við Hörð Axel í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert