„Maður reynir að þreyta hann“

Darri Hilmarsson er umtalaður fyrir góðan varnarleik og mbl.is spurði hann hvernig hefði verið að kljást við Tobin Carberry sem vakið hefur mikla athygli hjá Þór í vetur og hjá Hetti í fyrra. 

Darri var settur til höfuðs Carberry á köflum í bikarúrslitaleik KR og Þórs í dag þar sem KR hafði betur 78:71. 

„Það er mjög krefjandi. Hann er með þeim sneggstu sem maður hefur dekkað. Mér fannst ég standa mig mjög vel. Mér fannst hann aldrei skora á mig en samt skoraði hann 28 stig,“ sagði Darri og hló. 

Viðtalið við Darra í heild sinni er að finna í meðfylgjandi myndskeiði

Tobin Carberry með boltann í úrslitaleiknum í dag og Darri …
Tobin Carberry með boltann í úrslitaleiknum í dag og Darri Hilmarsson hefur góðar gætur á honum. mbl.is/Gollli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert