Landsliðsmaðurinn Jakob Örn Sigurðarson átti mjög góðan leik fyrir sænska liðið Borås sem mátti þola 79:93 tap gegn Jämtland í sænsku deildinni í körfubolta í dag.
Jakob skoraði 23 stig, tók fjögur fráköst og átti þrjár stoðsendingar. Staðan í hálfleik var 61:41 fyrir Jämtland sem kláraði leikinn örugglega í þeim síðari.
Borås er í 4. sæti deildarinnar, 14 stigum frá toppliði LF Basket.