Serbar mæta Slóvenum í úrslitum

Milan Macvan fagnar í kvöld.
Milan Macvan fagnar í kvöld. AFP

Serbía tryggði sér sæti í úrslitaleik Evrópumótsins í körfuknattleik með því að vinna Rússland, 87:79 í undanúrslitaleik í Tyrklandi í kvöld. Bogdan Bogdanovic var stigahæstur í liði Serba með 24 stig á meðan Aleksei Shved skoraði 33 stig fyrir Rússa.

Slóvenía tryggði sér sæti í úrslitum með að vinna ríkjandi Evrópumeistara Spánar í gær. Serbar voru yfir allan leikinn, en Rússar minnkuðu muninn í tvö stig í fjórða leikhluta. Serbneska liðið var hins vegar sterkara á lokakaflanum. 

Úrslitaleikurinn fer fram á sunnudaginn kemur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert