Jokic hafði betur gegn nýliðanum

Victor Wembanyama er nýliði í bandarísku NBA-deildinni í körfubolta.
Victor Wembanyama er nýliði í bandarísku NBA-deildinni í körfubolta. AFP/Brien Aho

Það var nóg um að vera í bandarísku NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Sex leikir voru á dagskrá frá því í gærkvöldi og er það ávallt ávísun á mikla skemmtun.

Denver Nuggets hafði betur gegn San Antonio Spurs á heimavelli Spurs-manna, 106:117, en nýliðinn Victor Wembanyama var með 17 stig og níu fráköst í gær.

Serbinn Nikola Jokic hélt þó áfram sínu góða gengi en hann hefur staðið sig með prýði á þessu tímabili með að meðaltali 26 stig, 12 fráköst og 9 stoðsendingar í leik.

Hann var drjúgur í gær í sigrinum og skoraði 31 stig auk þess að vera með 7 fráköst og 5 stoðsendingar og sigldi sigrinum heim fyrir Denver-menn. 

Úrslit næturinnar:

Detroit Pistons - Miami Heat 95:108

Charlotte Hornets - Phoenix Suns 96:107

Toronto Raptors - Orlando Magic 103:113

New Orleans Pelicans - Los Angeles Clippers 112:104

San Antonio Spurs - Denver Nuggets 106:117

Utah Jazz - Atlanta Hawks 124:122

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert