Lakers tókst loks að vinna Philadelphia

Anthony Davis úr Lakers og Mo Bamba úr 76ers eigast …
Anthony Davis úr Lakers og Mo Bamba úr 76ers eigast við í nótt. AFP/Sean Haffey

Los Angeles Lakers hafði betur gegn Philadelphia 76ers í bandarísku NBA-deildinni í körfubolta í nótt, 101:94. 

Var sigurinn kærkominn fyrir Lakers, eftir sjö töp í röð fyrir Philadelphia. Anthony Davis skoraði 23 stig og tók 19 fráköst fyrir Lakers. Tyrese Maxey skoraði 27 fyrir Philadelphia. Liðin eru líklega bæði að fara í umspil um sæti í úrslitakeppninni.

Minnesota Timberwolves er enn í hörðum slag á toppi Vesturdeildarinnar eftir 104:91-sigur á Cleveland Cavaliers á útivelli. Mike Conley skoraði 21 stig fyrir Minnesota. Darius Garland gerði 19 fyrir Cleveland.

Eru liðin bæði í þriðja sæti sinna deilda. Cleveland á enga möguleika á að ná Boston á toppi Austurdeildarinnar en Minnesota er aðeins einum sigri frá toppliði Oklahoma City Thunder í Vesturdeildinni.

Úrslit næturinnar í NBA-deildinni:
Detroit Pistons 102:129 Boston Celtics
Toronto Raptors 103:123 Oklahoma City Thunder
Miami Heat 88:111 New Orleans Pelicans
Minnesota Timberwolves 104:91 Cleveland Cavaliers
San Antonio Spurs 97:99 Memphis Grizzlies
Golden State Warriors 111:123 Indiana Pacers
Portland Trail Blazers 117:125 Los Angeles Clippers
Los Angeles Lakers 101:94 Philadelphia 76ers

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert