Zion Williamson fór á kostum í sigri New Orleans á Detroit Pistons, 114:101, í NBA-deildinni í körfubolta í Detroit í kvöld.
Zion skoraði 26 stig, tók sjö fráköst og gaf sex stoðsendingar. Þá skoraði hann úr 13 af 14 skotum sínum úr opnum leik og var með yfir 92% skotnýtingu.
New Orleans hefur verið í mikilli uppsiglingu undanfarið en liðið hefur unnið átta af síðustu tíu leikjum sínum og er sem stendur í fimmta sæti Vesturdeildarinnar.