Skoruðu 150 stig í Los Angeles

LeBron James í baráttunni í nótt.
LeBron James í baráttunni í nótt. AFP/Ronald Martinez

Los Angeles Lakers styrkti stöðu sína í baráttunni um sæti í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfuknattleik í nótt þegar liðið vann nauman sigur gegn Indiana Pacers á heimavelli.

Leiknum lauk með fimm stiga sigri LA Lakers, 150:145, en Anthony Davis átti sannkallaðan stórleik fyrir Lakers, skoraði 36 stig, tók 16 fráköst og gaf þrjár stoðsendingar.

LeBron James var einnig atkvæðamikill hjá Lakers með 26 stig, fimm fráköst og tíu stoðsendingar en Lakers er með 39 sigra í 9. sæti Vesturdeildarinnar.

Sex efstu liðin fara beint í úrslitakeppnina en liðin í 7.-10. sæti fara í umspil um sæti í úrslitakeppninni.

Úrslit næturinnar í NBA:

LA Lakers – Indiana Pacers 150:145
Milwaukee – Oklahoma City 118:93
Minnesota – Golden State 114:110
Miami – Cleveland 121:84
LA Clippers – Philadelphia 107:121

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert