Belfius Mons vann í kvöld heimasigur á Den Helder í sameiginlegri efstu deild Hollands og Belgíu í körfubolta. Urðu lokatölur 83:77.
Landsliðsmaðurinn Styrmir Snær Þrastarson átti góðan leik fyrir Belfius Mons, skoraði 19 stig, tók þrjú fráköst og gaf sex stoðsendingar á 28 mínútum.
Styrmir er á sínu fyrsta ári sem atvinnumaður og hefur leikið afar vel með Belfius Mons. Liðið er í fimmta sæti neðri hluta deildarinnar með þrjá sigra og eitt tap.