Kemst Keflavík í undanúrslit?

Remy Martin fór mikinn í síðasta leik liðanna.
Remy Martin fór mikinn í síðasta leik liðanna. Eggert Jóhannesson

Álftanes og Keflavík eigast við í fjórða leik liðanna í átta liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik á Álftanesi klukkan 19 í kvöld. 

Keflavík er yfir í einvíginu, 2:1, en með sigri í kvöld kemst liðið í undanúrslitin. 

Keflavík hefur unnið báða leikina í Keflavík nokkuð naumlega, 99:92 og 88:84, en Álftanes fór létt með Keflavík á Álftanesi fyrir átta dögum, 77:56. 

Valsmenn og Grindvíkingar eru komnir í undanúrslitin en Njarðvík og Þór Þorlákshöfn leika oddaleik á fimmtudaginn.

Leikur kvöldsins verður í beinni textalýsingu á mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka