Unnu Frakka og vinna riðilinn

Ísland hefur tryggt sér sigur í A-riðli handknattleikskeppni karla á Ólympíuleikunum í London eftir glæsilegan sigur á heims- og Ólympíumeisturum Frakka, 30:29, í kvöld.

Ísland er með 8 stig en Svíar og Frakkar eru með 6 stig hvort. Þó Ísland myndi tapa fyrir Bretlandi í lokaumferðinni á mánudag, vinnur liðið alltaf riðilinn á jafnri stigatölu og annaðhvort Svíar og Frakkar, vegna innbyrðis úrslitanna. En Ísland tapar ekki fyrir Bretum, það er hreinlega ekki fræðilegur möguleiki á því!

Þetta þýðir að Ísland mætir liðinu í fjórða sæti B-riðils sem verður nær örugglega annaðhvort Ungverjaland eða Serbía. Þó er ekki útilokað að það verði Spánverjar. Átta liða úrslitin fara fram á miðvikudaginn.

Þessi leikur fer í sögubækurnar sem einn sá besti hjá íslensku liði á stórmóti. Íslenska liðið komst í 14:9 í fyrri hálfleik, Frakkar jöfnuðu en Ísland náði forystu aftur fyrir hlé, 16:15.

Seinni hálfleikur var síðan í járnum allan tímann. Frakkar virtust vera að síga framúr, staðan var orðin 23:25, en Ísland svaraði með þremur mörkum í röð og innbyrti sigurinn með mögnuðum lokakafla. Alexander Petersson kom Íslandi í 30:28 þegar hann stal boltanum af Nikola Karabatic, rúmlega mínútu fyrir leikslok, og það mark gerði í raun út um leikinn. Frakkar gátu jafnað í síðustu sókninni en Björgvin Páll Gústavsson varði frá Daniel Narcisse á síðustu sekúndu og þar með var sigurinn í höfn.

Mörk Íslands: Alexander Petersson 6, Róbert Gunnarsson 5, Aron Pálmarsson 5, Guðjón Valur Sigurðsson 4, Ólafur Stefánsson 4, Arnór Atlason 3, Snorri Steinn Guðjónsson 1, Kári Kristján Kristjánsson 1, Ingimundur Ingimundarson 1.

Mörk Frakka: Jérome Fernandez 9, Cédric Sorhaindo 4, Samuel Honrubia 4, Nikola Karabaric 4, Luc Abalo 3, Michaël Guigou 2, Daniel Narcisse 2, Bertrand Gille 1.

Lið Íslands: Björgvin Páll Gústavsson, Hreiðar Levý Guðmundsson - Vignir Svavarsson, Kári Kristján Kristjánsson, Aron Pálmarsson, Ingimundur Ingimundarson, Ásgeir Örn Hallgrímsson, Arnór Atlason, Guðjón Valur Sigurðsson, Snorri Steinn Guðjónsson, Ólafur Stefánsson, Alexander Petersson, Sverre Jakobsson, Róbert Gunnarsson.

Lið Frakklands: Thierry Omeyer, Daouda Karaboué - Jérome Fernandez, Didier Dinart, Xavier Barachet, Guillaume Gille, Bertrand Gille, Daniel Narcisse, Guillaume Joli, Samuel Honrubia, Nikola Karabatic, Luc Abalo, Cédric Sorhaindo, Michaël Guigou.

Ísland 30:29 Frakkland opna loka
60. mín. Ísland tapar boltanum
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert