Kolfinna og Magnus sigruðu í borðtennis

Kolfinna Bjarnadóttir sigraði í borðtennis á Reykjavíkurleikunum eftir æsispennandi leik …
Kolfinna Bjarnadóttir sigraði í borðtennis á Reykjavíkurleikunum eftir æsispennandi leik við Aldísi Rún Lárusdóttur. Sportmyndir.is

Borðtennismót Reykjavíkurleikana fór fram í TBR-Íþróttahúsinu í Laugardal um helgina.  Keppt var í karla- og kvennaflokki þar sem allt besta borðtennisfólk landsins lék ásamt gestum frá Svíþjóð, Ungverjalandi og Póllandi.

Í karlaflokki léku til úrslita Svíinn Magnus Karl Markku og Daði Freyr Guðmundsson. Leikurinn var mjög skemmtilegur en hin sænski Magnus sigraði 4–0 (11–7, 11–7, 11–6 og 12–10).

Kolfinna Bjarndóttir og Aldís Rún Lárusdóttir léku til úrslita í kvennaflokki. Leikurinn var æsispennandi og þurfti að spila sjö lotur til að knýja fram úrslit. Kolfinna sigraði að lokum 4–3 en loturnar fóru 12-10, 15-17, 7-11, 9-11, 11-8, 11-7 og 12-10.

Svíinn Magnus Karl Markku sigraði í borðtenniskeppni Reykjavíkurleikanna 2016.
Svíinn Magnus Karl Markku sigraði í borðtenniskeppni Reykjavíkurleikanna 2016. Sportmyndir.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert