Andrés með fullkominn leik (myndband)

Andrés Páll Júlíusson úr ÍR setti Íslandsmet í tveim leikjum og náði fullkomnum leik eða 300 pinnum í keilukeppni WOW Reykjavik International Games í morgun. Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá þrjár síðustu fellur Andrésar.

Andrés er annar keppandi í keilukeppni helgarinnar til að ná fullkomnum leik, áður hafði Christopher Sloan frá Írlandi náð því. Sjá: Fullkominn leikur (myndskeið)

Útsláttarkeppni í keilu er nú í fullum gangi í Egilshöllinni þar sem 24 efstu í riðlakeppninni, sem farið hefur fram undanfarna daga, keppast um sigurinn. Keppni hófst klukkan 9 en áætlað er að komið verði fram í undanúrslit klukkan 15:30 og að úrslit ráðist um klukkan 17.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert