Jórunn bætti eigið Íslandsmet

Jórunn Harðardóttir skýtur í dag.
Jórunn Harðardóttir skýtur í dag. Ljósmynd/Sebastian Storgaard

Jórunn Harðardóttir, úr Skotfélagi Reykjavíkur, bætti eigið Íslandsmet í skotfimi á Reykjavíkurleikunum í dag. 

Jórunn sló metið í fyrri riðli undankeppninnar. Jórunn náði 567 stigum en fyrra met hennar var 560 stig. 

Síðari riðilinn hófst nú klukkan 11 og að honum loknum eru úrslitin þar sem átta efstu taka þátt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert