Elín og Magnús meistarar

Sigurvegararnir Elín Birna Hallgrímsdóttir og Magnús Aron Sigurðsson.
Sigurvegararnir Elín Birna Hallgrímsdóttir og Magnús Aron Sigurðsson. Ljósmynd/Valgerður Marija Purusic

Elín Birna Hallgrímsdóttir og Magnús Aron Sigurðsson báru sigur úr býtum í CrossFit á Reykjavíkurleikunum í Faxafeni í gær. 

Tólf keppendur tóku þátt og var þeim skipt niður í sex tveggja manna lið þar sem kona og karl voru í hverju liði. Liðin gerðu fjórar æfingar sem reyndu á mismunandi styrkleika og gátu þau fengið allt að 100 stig fyrir hvern lið. 

Þau Elín Birna og Magnús Aron unnu sér inn 100 stig í þremur æfingum af fjórum og 85 stig í fjórðu æfingunni.

Í öðru sæti urðu þau Hjördís Ósk Óskarsdóttir og Birkir Örn Kristjánsson með 257 stig. Í þriðja sæti enduðu þau Birta Líf Þórarinsdóttir og Rökkvi Hrafn Guðnason með 234 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert