Guðmundur og Clara fögnuðu sigri

Frá keppni í klifri í Laugardalshöll.
Frá keppni í klifri í Laugardalshöll. Ljósmynd/Sigurður Ólafur Sigurðsson

Guðmundur Þeyr Björnsson og Clara Stricker-Petersen frá Danmörku báru sigur úr býtum í klifri á Reykjavíkurleikunum í Laugardalshöll í gærkvöldi.

Fór keppni í klifri fram í fimmta skipti á leikunum. Alls mættu tólf keppendur til leiks, sex í karlaflokki og sex í kvennaflokki.

Birgir Óli Snorrason varð annar og Valdimar Björnsson þriðji í karlalfokki.

Gabríela Einarsdóttir varð önnur í kvennaflokki og Agnes Matthildur Folkmann þriðja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert