Tveir laxar í yfirvigt veiddust í Laxá í Aðaldal í síðdegis í gær og eru þeir stærstu laxarnir sem landað hefur verið það sem af er sumri. Eins og tíðkast í Aðaldal var þeim báðum sleppt eftir lengdar- og ummálsmælingu.
Þróaðir hafa verið sérstakir kvarðar til að áætla þyngd laxa út frá lengd og ummáli þeirra og einn þeirra er svokallaður Ally McGowan kvarði sem var gerður í kjölfarið á rannsóknum á rúmlega 800 atlantshafslöxum í Skotlandi árið 1994. Út frá kvarðanum er svo hægt er að finna þyngd þeirra út frá lengd og ummáli.
Laxinn sem rússneskur veiðimaður fékk á Breiðeyri í eftirmiðdaginn í gær reyndist vera 112 cm langur og samkvæmt nánari upplýsingum frá Orra Vigfússyni í morgun þá var ummál hans 57 cm og er samkvæmt þessum kvarða því 15,28 kíló eða rúmlega 30 pund.
Laxinn sem Örn Kjartansson veiddi svo í Höfðahyl á Nessvæðinu um svipað leyti í gær reyndist vera 110 cm langur og 56 cm að ummáli og er samkvæmt umræddum kvarða 14,49 kíló eða 29 pund.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |