Formaður veiðifélags Laugardalsár við Ísafjarðardjúp líst illa á áform um uppbyggingu á laxeldi þar um slóðir.
Í viðtali við vestfirska fréttamiðlinn Bæjarins Besta á Ísafirði segir Aðalsteinn Valdimarsson bóndi á Strandseljum í Ísafjarðardjúpi að mikil hætta sé á að hagsmunir veiðiréttareiganda á svæðinu komi til með að skaðast og verði áform um stóraukið laxeldi í Djúpinu að veruleika komi það til með að valda þeim tjóni.
Hann segir að ekki að engin trygging sé fyrir því að laxeldið muni ekki valda neinu tjóni og því muni veiðiréttareigendur við Laugardalsá ekki veita meðalmæli fyrir að farið verði út í þessar framkvæmdir. Aðalsteinn kveðst undrandi á því að engin þeirra aðila sem þarna kom við sögu, hvorki einkaaðilar né opinberir aðilar, hafi rætt þessi mál við veiðiréttareigendur sem lesa um öll þessi áform í fjölmiðlum, en áin er í eigu átta jarða í Laugardal.
Í sumar sem leið veiddust 251 laxar í Laugardalsá, en sumarið 2015 veiddust þar 521. Meðalveiði síðustu 10 árin hefur verið um 360 laxar en þar er veitt á tvær til þrjár stangir.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |