Hagnaður Volvo eykst um 34%

Hagnaður sænska vörubílaframleiðandans Volvo jókst um 34% á þriðja ársfjórðungi og nam 3,93 milljörðum sænskra króna, 37 milljörðum íslenskra króna. Sala Volvo jókst um 9% í fjórðungnum og nam 57,4 milljörðum sænskra króna. Mest var söluaukningin í Evrópu þar sem hún var 17% en í Bandaríkjunum nam aukningin 7%.

Hlutabréf í Volvo hækkuðu um 0,11% í Kauphöllinni í Stokkhólmi eftir að tilkynnt var um afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK