Stefnt að einkavæðingu flugvallarins í Prag

Frá flugvellinum í Prag
Frá flugvellinum í Prag Reuters

Unnið er að einkavæðingu flugvallarins í Prag og er talið að tékkneska ríkið fái allt að þrjá milljarða Bandaríkjadala fyrir flugvöllinn. Samkvæmt tékkneska vikuritinu Tyden eru nokkrir áhugasamir um kaup.

Samkvæmt Tyden hefur þýska fyrirtækið Hochtief sýnt áhuga, Fraport, sem rekur flugvöllinn í Frankfurt, Macquarie Bank í Ástralíu, slóvensku fjárfestarnir Penta og JT og tékkneska fjárfestingafélagið PPF.

Á síðasta ári fóru 11,5 milljónir farþega um flugvöllinn en stefnt er að völlurinn verði kominn í einkaeigu síðar á þessu ári.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK