Fjárfestar búa sig undir frekari titring á fjármálamörkuðum

Verð á hlutabréfum lækkaði talsvert á Wall Street í síðustu …
Verð á hlutabréfum lækkaði talsvert á Wall Street í síðustu viku. AP

Fjárfestar búast við taugatitringi við upphaf vikunnar þegar hlutabréfamarkaðirnir í Asíu opna á ný. Síðasta vika einkenndist af miklu umróti á mörkuðunum og féll verð á hlutabréfum um allan heim Rekja mátti ástandið til erfiðleika á fasteignalánamarkaði í Bandaríkjunum sem hafði áhrif á alþjóðlegan fjármagnsmarkað.

Nokkrir seðlabankar víða um heim veittu bönkum aðgang að milljörðum dala í lausafé til að bregðast við verðfalli á alþjóðlegum fjármagnsmarkaði. Sumir fjármálasérfræðingar búast við því að seðlabankarnir muni grípa til frekari aðgerða í komandi viku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK