Føroya Banki ætlar að opna útibú í Danmörku á fyrsta ársfjórðungi 2008 undir nafni Føroya Banka. Í tilkynningu kemur fram að tveir danskir bankamenn muni stýra starfseminni í Danmörku, Carlo Chow, sem verður forstjóri og Kim Linnemann sem verður framkvæmdastjóri Føroya Banka í Danmörku. Føroya Banki er skráður í Kauphöll OMX á Íslandi og Danmörku.