FL Group með 83,7% hlutafjár í Tryggingamiðstöðinni

FL Group hf. hefur náð samningum við Glitni banka hf., Hnotskurn ehf. og Samherja hf. um kaup á öllum hlutum þeirra í Tryggingamiðstöðinni hf. (TM) en um er að ræða 46,2% eignarhlut. Kaupverð hlutanna er 47 kr. á hlut og samanlagt kaupverð því tæpir 24 milljarðar króna. Kaupin verða að fullu fjármögnuð með útgáfu nýs hlutafjár í FL Group hf.

Seljendur fá í sinn hlut 973.673.140 hluti í FL Group á genginu 24,3. FL Group átti fyrir kaupin 37,6% hlutafjár í TM og á því eftir kaupin 83,7%, að því er segir í tilkynningu. Eignarhlutur Glitnis í FL Group eftir viðskiptin með TM jókst úr 3,25% í 13,80%

Fyrr í mánuðinum var greint frá því að Glitnir hafi samið um kaup á 39,8% hlut í Tryggingamiðstöðinni. Seljendur eru félög í eigu Guðbjargar M. Matthíasdóttur, Sigríðar E. Zoéga, Geirs G. Zoéga auk aðilar þeim tengdum. Eignarhaldsfélagið Kristinn ehf. sem er í eigu Guðbjargar M. Matthíasdóttur mun eiga 9% eignarhlut í TM eftir viðskiptin. Gengi bréfa TM í viðskiptunum var 46,5 krónur á hlut.

Stefnt að afskráningu TM

Kaupin eru háð samþykki hluthafafundar FL Group sem haldinn verður þriðjudaginn 25. september. Þar verður borin fram tillaga um hækkun hlutafjár félagsins vegna kaupanna. Viðskiptin eru ennfremur háð samþykki Fjármálaeftirlitsins. FL Group mun í kjölfarið gera öðrum hluthöfum í TM yfirtökutilboð og er gert ráð fyrir að TM verði afskráð af OMX Reykjavik.

Í tilkynningu frá FL Group kemur fram að eigið fé fyrirtækisins mun aukast um tæpa 24 milljarða króna eftir viðskiptin. Heildareignir FL Group námu við lok annars ársfjórðungs um 320 milljörðum króna og heildareignir TM á sama tíma voru rétt um 75 milljarðar króna.Heildareignir félagsins námu 263 milljörðum króna í upphafi ársins.

Fyrsta skref FL Group inn á tryggingamarkaðinn

„Stjórnendur FL Group telja að með þessum kaupum opnist tækifæri fyrir félagið á nýju sviði og að möguleikar félagsins til áframhaldandi vaxtar á fjármálamarkaði aukist. Kaup FL Group á TM er fyrsta skref félagsins inn á tryggingamarkaðinn en fyrir hefur það beint sjónum sínum mjög að bankageiranum og er stærsti hluthafinn í Glitni banka ásamt því að eiga umtalsverðan hlut í þýska bankanum Commerzbank. Með kaupunum verður ákveðin áherslubreyting þegar rekstrarfélag verður aftur hluti af FL Group samstæðunni og mun það styrkja félagið enn frekar," segir í tilkynningu.

Hannes Smárason forstjóri FL Group, segir í tilkynningu: ,,Með kaupum á TM er nýjum stoðum skotið undir starfsemi FL Group. Rekstur TM fellur vel að starfsemi okkar og þeim áherslu sem við viljum leggja í fjármálageiranum. Við munum leggja okkur fram um að styrkja og efla stöðu TM bæði hérlendis og erlendis og teljum að félagið eigi mikla vaxtarmöguleika. FL er alltaf að skoða ný og spennandi verkefni og það gæti hentað TM að koma að þeim í félagi við FL Group. Það er því ljóst að það eru spennandi tímar framundan," samkvæmt Hannesi í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK