250 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu

mbl.is

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 14. september til og með 20. september 2007 var 250. Þar af voru 182 samningar um eignir í fjölbýli, 39 samningar um sérbýli og 29 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 9.302 milljónir króna og meðalupphæð á samning 37,2 milljónir króna.

Á vef Fasteignamats ríkisins kemur fram að á sama tíma var 11 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli, 6 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir. Heildarveltan var 240 milljónir króna og meðalupphæð á samning 21,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 15 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 10 samningar um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 308 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,5 milljónir króna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK