Tilkynnt um starfslok Jóns Karls

Björgólfur Jóhannsson.
Björgólfur Jóhannsson. Ómar óskarsson

Stjórn Icelandair Group hefur ráðið Björgólf Jóhannsson sem forstjóra félagsins
frá og með 15. janúar 2008. Jafnframt hefur félagið og Jón Karl Ólafsson komist
að samkomulagi um að Jón Karl láti af störfum sem forstjóri þess frá sama tíma. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar OMX á Íslandi en greint var frá þessu í fjölmiðlum í gær.

Jón Karl Ólafsson, fráfarandi forstjóri Icelandair Group, segir í tilkynningu: „Ég hef starfað 25 ár að krefjandi og skemmtilegum verkefnum fyrir Icelandair  
Group og áður Flugleiðir. Félagið hefur gengið í gegnum miklar breytingar og  vaxið hratt undir minni stjórn á síðustu tveimur árum. Nú eru nýir aðilar komnir að félaginu með breyttar áherslur og þetta er því góður tími til að kveðja. Ég hef átt því láni að fagna að eignast marga góða vini meðal starfsmanna Icelandair Group og þakka þeim sérstaklega fyrir samstarfið."                  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK