Krónubréf fyrir 3 milljarða á gjalddaga

mbl.is/Júlíus

Krónubréf að nafnvirði 3 milljarðar króna falla á gjalddaga í dag að viðbættum vöxtum. Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) var útgefandi bréfanna en bankinn hefur alls gefið út krónubréf að nafnvirði 27 milljarða króna.

Heldur dauflegt hefur verið yfir krónubréfaútgáfu undanfarna mánuði þrátt fyrir mikinn vaxtamun við útlönd og hafa einungis verið gefin út krónubréf að nafnvirði 8 milljarða króna á 4. fjórðungi ársins, samkvæmt Morgunkorni Glitnis.

Á sama tíma hafa ríflega 15 milljarða króna krónubréf fallið á gjalddaga að deginum í dag meðtöldum. Nettókrónubréfastaða hefur því minnkað á fjórðungnum en útistandandi krónubréf nema nú 368,5 mö.kr.

 „Órói á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, skert aðgengi að lánsfé og aukin áhættufælni fjárfesta undanfarna mánuði virðast því vega þyngra en mikill munur á innlendum og erlendum skammtímavöxtum. Stórir gjalddagar í byrjun næsta árs Krónubréf að nafnvirði 100 ma.kr. auk vaxta falla á gjalddaga á 1. fjórðungi næsta árs, þar af 65 ma.kr. að nafnvirði í janúar.

Enn er óvíst hvort framlengt verði í krónubréfastöðunni að einhverju leyti og teljum við að það muni ráðast af þeim skilyrðum sem verða á erlendum fjármálamörkuðum í byrjun nýs árs. Uppgjör stærstu fjármálafyrirtækja heims fyrir 4. ársfjórðung verða birt upp úr áramótum og munu varpa frekara ljósi á hversu víðfeðm áhrif undirmálslánavanda á bandarískum húsnæðismarkaði eru og ráða miklu um hvort áhættusækni fjárfesta sækir í sig veðrið að nýju," samkvæmt Morgunkorni Glitnis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK