Vextir lækkaðir vestanhafs

Stjórn bandaríska seðlabankans lækkaði stýrivexti um hálfa prósentu í kvöld og eru stýrivextirnir þá 3%. Er þetta í annað skipti á átta dögum, sem vextirnir eru lækkaðir til að styðja við bandaríska hagkerfið, sem sumir hagfræðingar telja að sé á barmi samdráttar.

Í tilkynningu frá bankastjórninni segir, að fjármálamarkaðir séu undir talsverðu álagi og enn sé skortur á lánsfé fyrir fyrirtæki og heimili. Þá bendi nýlegar upplýsingar til þess, að samdráttur á fasteignamarkaði hafi enn aukist og einnig séu vísbendingar um samdrátt á vinnumarkaði. 

Þá sagði bankastjórnin, að ákvörðunin í dag og í síðustu viku ætti að ýta undir hagvöxt með tímanum og draga úr þeim hættum, sem steðjuðu að bandarísku efnahagslífi. Hins vegar sé enn hætta á samdrætti og bankastjórnin muni halda áfram að fylgjast með fjármálamörkuðum. 

Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna.
Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna. Reuters
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK