Krónan í frjálsu falli

mbl.is

Gengi krónunnar hefur lækkað um 5,92% það sem af er degi en gengisvísitalan stendur í 152,05 stigum og hefur aldrei í sögunni verið hærri en hæst fór hún áður í 151,4 í nóvemberlok 2001. Mikil velta er á millibankamarkaði eða rúmir 40 milljarðar króna og samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Glitnis er þetta mesta sveifla á gengi krónunnar innan dags sem menn muna eftir.

Evran komin yfir 118 krónur

Gengi Bandaríkjadals er 74,95 krónur, evran er 118,20 krónur, og hefur aldrei verið hærri, og pundið 150,33 krónur. 

Í Morgunkorni Glitnis kemur fram að lækkun á gengi krónunnar skýrist meðal annars af almennum flótta úr vaxtamunarviðskiptum á heimsvísu og sá afsláttur sem gefinn er af vaxtamun í framvirkum samningum og gjaldeyrisskiptasamningum með krónu þessa dagana.

„Hávaxtamyntir hafa almennt gefið mikið eftir í kjölfar falls Bear Stearns. Til að mynda hefur tyrkneska líran lækkað um 3,4% og suður-afríski randinn um 3,5% gagnvart evru það sem af er degi. Áhættufælni er geysimikil á mörkuðum og ótti manna verulegur um að fleiri fjármálafyrirtæki lendi í áþekkum kröggum og Bear Stearns á næstunni.

Við þetta bætist svo að vaxtamunur í framvirkum samningum og skiptasamningum með krónur gagnvart evru og Bandaríkjadollar er mun minni en skammtímavextir í löndunum þremur gefa til kynna. Þannig er ábati af vaxtamunarviðskiptum í þessum fjármálaafurðum að sama skapi minni en ætla mætti og kostnaðurinn við skortstöðu gegn krónu einnig," samkvæmt Morgunkorni Glitnis.

Þar kemur fram að krónan mun að líkum eiga undir högg að sækja meðan óttinn er allsráðandi á alþjóðamörkuðum. Greining Glitnis telur hins vegar að hreyfingar síðustu daga séu yfirskot og að krónan muni styrkjast nokkuð að nýju þegar dregur úr áhættufælni á mörkuðum og aðgengi að erlendu lausafé batnar.

FL Group lækkar um 7,3%

Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 3,2% það sem af er degi. FL Group hefur lækkað um 7,3%, Færeyjabanki hefur lækkað um 6,7% og Exista um 5,4%.

Sömu sögu er að segja af öðrum norrænum kauphöllum. Í Ósló nemur lækkunin 2,4%, Kaupmannahöfn 1,8%, Stokkhólmi 3% og Helsinki 2,9%. Samnorræna vísitalan Nordic 40 hefur lækkað um 3%. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Jón Ásgeir Jóhannesson.

Jón Ásgeir tekur til hjá 365

19:25 Jón Ásgeir Jóhannesson er kominn með skrifstofuaðstöðu í húsnæði 365 miðla við Skaftahlíð. Viðskiptablaðið hefur heimildir fyrir því að Jón Ásgeir hafi komið meira að ákvörðunum sem varði rekstur fyrirtækisins undanfarna mánuði. Meira »
Time Warner

Time Warner gleður fjárfesta

16:04 Hagnaður bandaríska fjölmiðlafyrirtækisins Time Warner jókst um 0,5% á fjórða ársfjórðungi og nam 233 milljónum Bandaríkjadala, 28,5 milljörðum króna. Meira »

Hlutabréfavísitölur á uppleið

15:53 Helstu hlutabréfavísitölur beggja vegna Atlantsála hafa hækkað í dag vegna væntinga um að samkomulag sé að nást í Grikklandi um skuldir ríkissjóðs. Meira »

Ákvörðunin kom skemmtilega á óvart

Már Guðmundsson seðlabankastjóri
15:16 Greiningardeild Arion-banka segir að ákvörðun Seðlabanka Íslands um að halda stýrivöxtum óbreyttum hafi komið deildinni skemmtilega á óvart en deildin hafði spáð stýrivaxtahækkun. Meira »

Mikil viðbrögð á markaði

12:24 Mikil viðbrögð hafi verið á skuldabréfamarkaði í morgun í kjölfar tilkynningar peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands um óbreytta vexti, samkvæmt upplýsingum frá greiningu Íslandsbanka. Meira »

Vextir miklu hærri hér

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ
11:59 Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að því beri að fagna að Seðlabankinn hafi ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum en á sama tíma skjóti það skökku við að stýrivextir á Íslandi séu 4,5% hærri heldur en í helstu viðskiptalöndum. Meira »

Veltuaukningin 6,8%

Íslendingar notuðu Visa kortin sín mun meira í janúar í ár en í fyrra í ...
15:39 Veltuaukning á Visa kreditkortaviðskiptum var 6,8% í janúar borið saman við sama mánuð í fyrra. Notkunin innanlands jókst um 5,6% en í útlöndum var veltuaukningin tæp 17,4%. Meira »

Íhugaði að segja af sér

Forstjóri Royal Bank of Scotland, Stephen Hester
12:42 Stephen Hester, forstjóri breska bankans Royal Bank of Scotland, viðurkennir að hann hafi ekki gert sér grein fyrir því fyrirfram hversu mikil reiði myndi brjótast út vegna fyrirhugaðra bónusgreiðslna hans og segist hann hafa íhugað að segja af sér. Meira »

Nýr tónn hjá nefndinni

Seðlabanki Íslands
12:21 Greining Íslandsbanka segir að nú kveði við nýjan tón hjá peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands en nefndin telur að ef verðbólguhorfur batni ekki þurfi að hækka nafnvexti. Meira »

Verðbólgan veldur áhyggjum

Vilhjálmur Egilsson
11:22 Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að verðbólgan valdi samtökunum áhyggjum líkt og Seðlabankanum en útlit er fyrir að verðbólgan haldist áfram mikil á Íslandi. Meira »

Einkaneyslan helsti drifkrafturinn

Seðlabankinn spáir því að einkaneysla verði áfram töluverð á Íslandi
10:23 Seðlabankinn gerir ráð fyrir að einkaneysla verði áfram einn helsti helstu drifkraftur efnahagsbatans líkt og á undanförnum misserum. Til loka árs 2014 spáir Seðlabankinn því að einkaneysla muni vaxa um 2½% að meðaltali á ári. Meira »

Veltuaukningin 73,9%

Fasteignasala jókst á síðasta ári á höfuðborgarsvæðinu
11:35 Alls var 372 kaupsamningum um fasteignir þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í janúar. Heildarvelta nam 11 milljörðum króna. Er þetta veltuaukning um 73,9% á milli ára. Meira »

Níu evruríki vilja skatt á fjármagnsflutninga

10:39 Hópur níu evruríkja undir forystu Frakklands og Þýskalands hafa óskað eftir því við Dani, sem fara nú með forsætið innan Evrópusambandsins, að flýta áætlunum um sérstakan skatt á fjármagnsflutninga. Meira »

Hagvaxtarspár á niðurleið

10:09 Spár um hagvöxt á þessu ári hafa verið lækkaðar í flestum viðskiptalöndum Íslands, að Bandaríkjunum og Japan undanskildum. Efnahags- og þróunarstofnunin (OECD) spáir 0,8% hagvexti á árinu í helstu viðskiptalöndum Íslands. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir