Tap Exista rúmir fimm milljarðar króna

mbl.is

Tap Exista nam 43,8 milljónum evra, rúmum fimm milljörðum króna, á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 640,7 milljónir evra hagnað á sama tímabili í fyrra. Tap fyrir skatta á fyrsta ársfjórðungi nam 45,9 milljónir evra, en á sama tímabili í fyrra var hagnaður fyrir skatta 597,5 milljónir evra.

Heildartekjur samstæðunnar námu 16,1 milljón evra i fyrsta ársfjórðungi 2008, en voru 668 milljónir evra á sama tímabili í fyrra. Tap á fjáreignum á gangvirði var 173,2 milljónir evra á fjórðungnum, samanborið við 38,2 milljónir evra hagnað á fyrstu þremur mánuðunum 2007. Hagnaður af veltufjáreignum nam 58,5 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi. Hagnaður af veltufjáreignum var 110,8 milljónir evra á sama tímabili í fyrra.

Arðstekjur námu 4,3 milljónum evra, samanborið við 5 milljónir evra á fyrstu þremur mánuðum síðasta árs. Vakin er athygli á því í uppgjöri félagsins að arður frá hlutdeildarfélögum í fjármálaþjónustu, Kaupþingi og Sampo, er ekki tekjufærður, heldur færður til lækkunar á bókfærðu virði í efnahagsreikningi og tekinn inn í fjárstreymi félagsins. Arður
hlutdeildarfélaga nam 28,6 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi 2008, en 138 milljóna evra arður frá Sampo Group verður færður inn í reikninga annars ársfjórðungs 2008.

Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Exista segir í fréttatilkynningu: „Við erum sátt við útkomu Exista úr ársfjórðungi sem reynst hefur fyrirtækjum í fjármálaþjónustu sérlega erfiður. Þrátt fyrir neikvæða afkomu, þá hefur Exista staðið vörð um sterkar fjárhagslegar undirstöður, öfluga lausafjárstöðu og framúrskarandi eignir.

Við höfum hagað starfsemi Exista, kostnaðaraðhaldi og áhættustýringu með þeim hætti að tekist hefur að tryggja fjárhagsstyrk og lausafé félagsins á tímum umróts á alþjóðamörkuðum. Samhliða höfum við tekið mikilvæg skref við að skapa ný sóknarfæri, svo sem með kaupum á Skiptum. Ítök Exista í fjármálaþjónustu á Norðurlöndum halda áfram að aukast og skapa félaginu spennandi möguleika til framtíðar.“
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK