Reglur um gjaldeyrisjöfnuð fjármálafyrirtækja þrengdar

Seðlabanki Íslands gaf í dag út nýjar reglur um gjaldeyrisjöfnuð fjármálafyrirtækja sem gildi taka 1. júlí n.k. Meginbreytingin frá fyrri reglum er að misvægi á milli gengisbundinna eigna og skulda fjármálafyrirtækja skal mest nema 10% af eigin fé hverju sinni en var 30% í fyrri reglum.

Seðlabankinn segir, að lægra misvægi, sem nýju reglurnar feli í sér, sé ætlað að draga úr áhættu og stuðla að virkari verðmyndun gjaldeyris á millibankamarkaði.

Til varnar neikvæðum áhrifum af breytingum á gengi krónunnar á eiginfjárhlutfall getur Seðlabanki Íslands hér eftir sem hingað til veitt fjármálafyrirtæki heimild til þess að hafa sérstakan jákvæðan gjaldeyrisjöfnuð utan við almennan gjaldeyrisjöfnuð. Stærstu viðskiptabankarnir, sem reka umsvifamikla starfsemi erlendis, hafa slíka heimild frá Seðlabankanum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK