Deilt um ástæðu verðhækkana

Olíuframleiðsla rædd í Jeddah.
Olíuframleiðsla rædd í Jeddah. Reuters

Orkumálaráðherra Bandaríkjanna, Samuel Bodman sagði í dag að ónóg olíuframleiðsla en ekki spákaupmennska með olíu væri ástæðan fyrir hækkandi hráolíuverði á heimsmarkaði.

Bodman lét þessi orð falla í hafnarborginni Jeddah í Sádi Arabíu þar sem orkumálafundur hefst nú um helgina.

Olíuframleiðendur á borð við Sádi Arabíu hafa sagt að framboð af olíu sé nægilegt og segja að spákaupmennsku sé um að kenna.

Sád- Arabar greindu frá því á ráðstefunni að þeir myndu auka olíuframleiðslu sína um 2% í júlí til þess að reyna að koma ró á olíumarkaðinn og um leið stöðva verðhækkanir á olíu. Það þýðir aukningu upp á 200 þúsund tunnur á dag í 9,7 milljónir tunna. Verð á hráolíu hefur tvöfaldast á einu ári og fór á mánudaginn í 139,89 dali tunnan.

Bandaríkin og mörg önnur vestræn lönd hafa lagt mjög hart að Sádi Arabíu og öðrum olíuframleiðsluríkjum að auka framleiðsluna.

Bodman heldur því fram að framleiðslan hafi ekki haldist í hendur við eftirspurn, sérlega frá þróunarlöndum í örum vexti á borð við Indland og Kína.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK