Viðskipti
| mbl
| 31.7.2008
| 8:52
930 milljarða gróði á þremur mánuðum
Hagnaður olíufélagsins Royal Dutch Shell PLC. nam 11,6 milljörðum dala, jafnvirði 930 milljarða króna, á öðrum ársfjórðungi og jókst um 33% frá árinu á undan. Er þetta methagnaður hjá fyrirtækinu, sem skýrist aðallega af háu eldsneytisverði og lágu gengi bandaríkjadals.
Jeroen van der Veer, forstjóri Shell, sagði í tilkynningu að afkoman væri „samkeppnishæf".
Almennt hafði verið búist við þessari niðurstöðu og hækkuðu bréf Shell aðeins um 1,2% í viðskiptum í kauphöllinni í Amsterdam í morgun.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















