Samþykkja afskráningu Atorku

Kauphöll Nasdaq OMX á Íslandi.
Kauphöll Nasdaq OMX á Íslandi. Ásdís Ásgeirsdóttir

Hluthafar í Atorku samþykktu fyrr í dag tillögu stjórnar félagsins um afskráningu þess úr Kauphöll Íslands. Atorka Group mun því líklega bætast við hóp þeirra fjölmörgu félaga sem horfið hafa af markaði í ár.

Í Hálffimm fréttum greiningardeildar Kaupþings eru talin upp þau átta fyrirtæki sem horfið af markaði á árinu. 365 hf., Flaga Group, FL Group, Icelandic Group, Teymi og TM auk Glitnis og Landsbankans. Einnig megi  reikna með að tvö önnur félög, Atorka og Vinnslustöðin, bætist í þann hóp.

Þá hyggst stjórn Existu leggja það til við hluthafafund, sem haldinn verður í næstu viku, að félagið verði afskráð úr Kauphöll og ekki er ólíklegt að Kaupþing muni óska eftir því að bréf félagsins verði tekin úr viðskiptum líkt og gerðist í tilfellum hinna viðskiptabankanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK