365 verður Íslensk afþreying

Frá hluthafafundi 365 í dag. Frá vinstri eru Lára N. Eggertsdóttir, Einar Þór Sverrisson, Ari ... stækka

Frá hluthafafundi 365 í dag. Frá vinstri eru Lára N. Eggertsdóttir, Einar Þór Sverrisson, Ari Edwald og Björn Sigurðsson. mbl.is/Ómar

Á hluthafafundi 365 hf. sem haldinn var í dag var samþykkt samhljóða að breyta nafni félagsins í Íslensk afþreying hf. Íslensk afþreying er hlutafélag tveggja eininga, Senu ehf. og EFG ehf. og starfar félagið einkum á vettvangi afþreyingar og skyldrar starfsemi. Gert er ráð fyrir að velta félaganna á þessu ári sé samtals um sex milljarðar króna.

Einnig var á fundinum samþykkt samhljóða að veita stjórn heimild til hækkunar á hlutafé að andvirði þriggja milljarða króna að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta.

Á fundinum var einnig samþykkt samhljóða að fækka stjórnarmönnum félagsins úr fimm aðalmönnum í þrjá. Á fundinum voru sjálfkjörin í stjórn Ari Edwald, sem mun gegna stjórnarformennsku, Einar Þór Sverrisson og Lára N. Eggertsdóttir og Hildur Sverrisdóttir sem varamaður.
Björn Sigurðsson verður forstjóri Íslenskrar afþreyingar hf. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

P&G ýtir undir hækkun

21:51 Helstu hlutabréfavísitölur hækkuðu í Bandaríkjunum í kvöld en meðal þess sem ýtti undir hækkun Dow Jones vísitölunnar voru fréttir um að Procter & Gamble ætli að draga úr kostnaði í rekstri sem nemur 10 milljörðum Bandaríkjadala fyrir árslok 2016. Meira »
Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka

Olíuverð heldur áfram að hækka

21:31 Heimsmarkaðsverð á olíu hélt áfram að hækka í dag og hefur ekki verið hærra í níu mánuði.  Meira »

Rúmlega 400 missa vinnuna

21:07 Flugfélagið Air New Zealand ætlar að segja upp ríflega 400 starfsmönnum fyrir lok rekstrarársins. Á fyrstu sex mánuðum þess dróst hagnaður Air New Zealand saman um 61,2% frá sama tímabili árið á undan. Meira »

Gannett rukkar fyrir lestur á netinu

Lestur blaða hefur að miklu leyti færst yfir í rafrænt form.
19:29 Gannett, stærsta dagblaðaútgáfa Bandaríkjanna, ætlar að krefja lesendur dagblaða í eigu útgáfunnar fyrir lestur á fréttum blaðanna á netinu. Um áttatíu dagblöð eru í eigu Gannett og þarf að greiða fyrir lestur þeirra allra fyrir utan USA Today. Meira »

Niðurfærsla samþykkt

Gríðarleg óánægja er með fyrirhugaðan niðurskurð í Grikklandi og mótmæli daglegt brauð við þinghúsið í ...
16:55 Gríska þingið samþykkti í dag frumvarp til laga um að heimila niðurfærslu 107 milljarða evra af skuldum ríkissjóðs hjá bönkum og fjármálastofnunum. Meira »

Viðskiptavinir Nova ánægðastir

Fulltrúar fyrirtækja sem mældust hæst í Íslensku ánægjuvoginni.
15:49 Viðskiptavinir Nova eru ánægðastir samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni 2011. Fékk fyrirtækið 73,3 stig af 100 möguleikum í mælingunni. Í fyrsta sæti í flokki banka er Íslandsbanki og í flokki tryggingafélaga er Tryggingamiðstöðin með hæstu einkunnina. Meira »

Skuldakreppan á borð G20

19:54 Fjármálaráðherrar G-20 ríkjanna (20 helstu iðnríkja heims) og seðlabankastjórar munu koma saman á fundi í Mexíkóborg um helgina og ræða skuldakreppuna á evrusvæðinu. Meira »

Skapar 20.600 störf

18:48 Efnahagslegur ábati af flugtengdri starfsemi á Íslandi er margháttaður. Þannig skapar atvinnugreinin alls um 20.600 störf og þjóðhagsleg áhrif á verga landsframleiðslu eru kringum 12,9%. Meira »

Færir Advania forystu?

Valitor fær aðgang að upplýsingum

16:40 Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem felldi úr gildi úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála um að neita Valitor um aðgang að upplýsingum um nöfn og verð í kvörtun Borgunar hf. Meira »

Hlutabréf lækka en evran hækkar

Frá kauphöllinni í Frankfurt í dag
15:30 Hlutabréfavísitölur í Evrópu og Bandaríkjunum hafa lækkað í dag en evran hefur styrkst gagnvart Bandaríkjadal.   Meira »

Norska krónan styrkist enn

Norskar krónur.
15:07 Norska krónan hefur verið að styrkjast síðustu misseri og hefur ekki verið sterkari gagnvart evru í níu ár.  Meira »

Afleit afkoma RBS

Royal Bank of Scotland (RBS)
15:32 Tap breska bankans Royal Bank of Scotland nam 1,99 milljörðum punda, 389,40 milljörðum króna, á síðasta ári.   Meira »

Vinnumarkaður að rétta úr kútnum

Atvinnuleysi fer minnkandi í Bandaríkjunum
15:25 Litlar breytingar urðu á nýjum umsóknum um atvinnuleysisbótum í Bandaríkjunum í síðustu viku og bendir allt til þess að vinnumarkaðurinn sé hægt og bítandi að rétta úr kútnum þar í landi. Meira »

Rammagerðin opnar verslun á Akureyri

Lovísa Óladóttir framkvæmdastjóri og Halla Sigbjörnsdóttir verslunarstjóri.
15:03 Gjafavöruverslunin Rammagerðin opnaði í dag, 23. febrúar, nýja verslun á Akureyri. Verslunin er í endurgerðu húsi, Hamborg, að Hafnarstræti 94 á Akureyri. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir